Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
22.12.2007 | 21:03
Læknamistök framhald.
22.12.2007 | 20:50
Læknamistök framhald.
Ég fór í ófrjósemisaðgerð vegna þess að ég var búinn með kvótann á 4 börn, var of mikil aðgerð fyrir
konuna að fara því var ákveðið að ég færi í þessa aðgerð. Konan fletti upp í gulusíðunum og fann þar þvagfæraskurðlækni sem ég mælti mér mót við og var aðgerðin dagsett (okt 2001). Mætti ég á tilsettum tíma á handlæknastöðina við álfheima, mér var komið fyrir á aðgerðarborði og ein kvk til aðstoðar sérfræðing. Byrjað var h-m húð deyfð sáðrás fundinn skorið og brennt, v-m húð deyfð tók slagæð í stað sáðrásar "því fylgdi hræðilegar kvalir" skorið og blóðið spíttist upp í loft. Ég réð ekki við neðri hluta líkamanns lappirnar hristust réð ekki við það, konan byrjaði að sparka í hurðina til að fá aðstoð. Ég man það kom kona stóð við höfuð mér og hélt um það spurði hvað gerðist og fékk ekki svar fyrr hún hrópaði stopp, hvað er að geraðst hér. Eftir stutta stund kom svæfingalæknir og gaf mér sprautu og ég sofnaði, vaknaði aftur eftir aðgerðina og með hræðilegar kvalir sem áttu eftir að fylgja mér í marga mánuði. frhl síðar.
22.12.2007 | 00:06
Upphaf og (endir) á læknamistökum.
Nú er komin tími á að segja ykkur frá baráttu mynni við að fá læknisaðstoð eftir ófrjósemisaðgerð, landlæknisembættið, lækna og uppgjörið við tryggingafélagið. Æð var tekinn í sundur í stað sáðrásar
þetta er löng saga og spennandi, lærdómsrík fyrir mig og vonandi aðra líka. Að þurfa berjast með lögfr til að fá læknisaðstoð við landlæknisembættið.
Ég skrifa þetta í köflum, svo má endilega spyrja ef vakna sp.
29.8.2007 | 23:27
Glitnir stóð fyrir latabæjarhlaupi
Við hjónin vorum í kvöld í fjöruferð með dóttir okkar sem er 6ára, alltaf getur verið gaman að hlusta
og spjalla við þessi kríli. Við vorum að ganga til baka þegar mín litla fór að tala um kreditkort. Mér hreinlega brá að heyra þetta og fór að útskýra fyrir henni að kreditkort væri lánskort og værum við að eyða peningum sem við ættum ekki til, ok en þá sagði hún sár en það þarf kreditkort til að fara latabæjarhlaupið. Hvað á þetta að þýða fyrir blessuð börnin? Hefði ekki verið betra hjá GLITNIR að leyfa börnunum að borga á staðnum kannski með klinki nei auðvita ekki þá fær GLITNIR ekki vextina sýna. Flott skilaboð eða? Ég held að þessir gaurar ættu að fara hysja upp um sig buxurnar mjög léleg brella hjá ykkur. Ég gat ekki greitt því ég er hættur að nota kreditkort og dóttir mín er sár að hafa ekki fengið að taka þátt. Kannski verður GLITNIR búinn að senda henni KRETIDKORT fyrir næsta Latabæjarhlaup.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.9.2007 kl. 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2007 | 09:02
Gæti verið að við höfum orðið tvær stjórnir í landinu?
Bankarnir eru komnir með kverkatak á fólki að mínu mati, ef ég yrði atvinnulaus eða frá vinnu vegna
veikinda þá gæti ég hugsanleg reddað mér í 4-5 mán t.d á atvinnuleysisbótum. Hvar erum við stödd?
Vextir bankanna eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum, neyslulán með allt að 22% vöxtum langtíma
lán á t.d 2 veðrétti í fasteign Rvk er um 11%. Hvað á að gera? Nr 1 ætti að byrja frá grunni að hækka
atvinnuleysisbætur um 50% og reikna út frá þeim varðandi greiðslumat við íbúðarkaup + það sem fólk
hefur á milli handanna, við verðum að geta verið örugg um að geta greitt áfram af íbúðalánum þótt
svo að verða atvinnulaus eða missa tekjur. Ég vill eiga gott og öruggt skjól fyrir börninn mín, það er
okkar skylda.
22.7.2007 | 07:52
Laga klúður eða fljótfærni ríkisstjórnar?
Hef furðað mig á því og pirrað hversvegna virðisaukaskattur var lækkaður á gosi og sælgæti þegar
við höfum ekki peninga til að halda úti fríum tannlækningum fyrir börnin okkar. Kannski höfum við
svigrúm núna til þess með því að hækka hann aftur í sitt eðlilega horf, það er óþolandi að horfa uppá
svona klúður þegar fjölskyldur með börn þurfa greiða hluta af kostnaði tannlækninga. Tannréttingar
eru svo dýrar að margar fjölskyldur hafa ekki efni á að fara með börnin, ég hvet ráðherra Guðlaug þór
Þórðason að fara vandlega yfir þessi mál og breyta þessu.
Um bloggið
Jón Björn Steingrímsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar